Stöðug umferðaraukning kallar á tvöfaldan Suðurlandsveg
Landsmenn kynntust því um síðustu helgi hve umferð hefur vaxið gríðarlega og að sama skapi hvað vegirnir eru vanbúnir til að anna slíkri umferð. Þannig fóru um 17.000 bílar um Suðurlandsveg síðasta sunnudag og svipaður fjöldi á föstudeginum áður og umferðin gekk vægast sagt hægt fyrir sig. Mikil umræða hefur ... Lesa meira
Auglýst eftir menningarfulltrúa
Nýstofnað Menningarráð Suðurlands lauk gerð samþykkta fyrir ráðið á síðasta fundi sínum og og jafnframt starfslýsingu menningarfulltrúa sem ætlunin er að ráða. Samþykkt var að auglýsa starfið og er gert ráð fyrir að menningarfulltrúi taki til starfa 1. september nk. Sjá nánar í auglýsingu: Menningarfulltrúi Suðurlands Menningarráð Suðurlands auglýsir starf ... Lesa meira
Menningarsamningur undirritaður
Í gær, 2. maí 2007, var á Eyrarbakka undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 14 sveitarfélög á Suðurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Er þetta í fyrsta sinn ... Lesa meira
Orkan verði nýtt á Suðurlandi
Á fundi stjórnar SASS sem haldinn var 20. mars sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt um orkumál með einu mótatkvæði, sjá nánar í fundargerð 402. fundar: ,,Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vekja athygli á breyttum aðstæðum sem hafa skapast í orkumálum á Íslandi vegna niðurstöðu nýafstaðinnar kosningar í Hafnarfirði sem hefur stöðvað frekari ... Lesa meira
Suðurland – framtíðarlandið
Föstudaginn 30. mars nk. verður haldið málþing á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Vinnumálastofnun á Suðurlandi. Á málþinginu verður fjallað um framtíð Suðurlands, þau tækifæri sem svæðið býður upp á og hvernig best er að nýta þau. Meðal fyrirlesara verða: Andri Snær Magnason rithöfundur, Friðrik Sophusson ... Lesa meira
Umsögn SASS um um samgönguáætlun fyrir árin 2007 – 2018
Hér á eftir fer umsögn SASS um 12 ára samgönguáætlun sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. ,,Samtök sunnlenskra sveitarfélaga lýsa yfir ánægju með þá stefnu um stóraukið fjármagn til samgöngumála sem fram kemur í þingsályktunartillögunni. Samtökin fagna stórauknum framlögum til Suðurlandsvegar og leggja áherslu á í að um leið ... Lesa meira
Sameiginleg ályktun SASS og SSS um Suðurstrandarveg
Í tillögu að 12 ára samgönguáætlun, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, er ekki gert ráð fyrir að framkvæmdum við Suðurstrandarveg ljúki fyrr en í lok tímabilsins.. Af þessu tilefni hafa stjórnir Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum samþykkt eftirfarandi sameiginlega ályktun um málið: ,,Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og ... Lesa meira
Selfoss – Reykjavík: Umferðaraukningin 2006 um 10%
Veruleg aukning varð á umferðinni á milli Selfoss og Reykjavíkur á síðasta ári. Umferðartalning fer fram á 4 stöðum; við Ingólfsfjall, á Hellisheiði, á Sandskeiði og við Geitháls. Meðalumferð við Ingólfsjall var 7.049 bílar á sólarhring, hafði aukist um 521 bíl á dag frá árinu áður eða um 8,0%. Á ... Lesa meira
Undirbúningur að háskólanámi á Suðurlandi
Primordia ráðgjöf ehf. (www.primordia.is), hefur tekið að sér að undirbúa stofnun "Háskólafélag Suðurlands hf.", eins og vinnuheiti verkefnisins er í dag, sem á að miðla, og hugsanlega skapa, háskólanám á Suðurlandi. Verkefnið er kostað af Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og hefur það að markmiði að miðla háskólanámi á Suðurlandi og byggja upp umhverfi ... Lesa meira
Skrifað undir samning um rekstur Gaulverjaskóla
Skrifað var undir samning um rekstur meðferðar- og skólaúrræðisins Gaulverjaskóla fimmtudaginn 18. janúar 2007 kl. 12 í Félagslundi í Flóahreppi. Samningurinn tryggir rekstur úrræðisins í þrjú ár, eða til ársloka 2008. Þeir sem skrifuðu undir samninginn voru: Þorvarður Hjaltason, f.h. Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Kristín Hreinsdóttir, f.h. Skólaskrifstofu Suðurlands, Kári Stefánsson, ... Lesa meira
ÁFRAM VEGINN – kynningarfundur um tvöföldun Suðurlandsvegar
Á morgun þriðjudaginn 7. nóvember verður haldinn fundur um nýjar hugmyndir vegna Suðurlandsvegar og uppbyggingar umferðarmannvirkja. Fundurinn fer fram í Tryggvaskála á Selfossi frá kl. 12:00-13:40. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Stefanía Katrín Karlsdóttir bæjarstjóri Árborgar setur fundinn. Framsögumenn verða Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá, Einar Guðmundsson forstöðumaður Sjóvá ... Lesa meira
Vaxtarsamningur Suðurlands undirritaður
Vaxtarsamningur Suðurlands var undirritaður sl. föstudag á Hótel Hvolsvelli. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd ríkisns og hélt ávarp. Í máli hans kom m.a. fram að vaxtarsamniningar færðu aukið vald til heimamanna og efldu frumkvæði og samstöðu í byggðarlögunum. Meginmarkmið samningsins eru: að efla Suðurland sem eftirsóttan valkost ... Lesa meira
Kynningarfundur Skipulagsstofnunar 9. október
Tekið hafa gildi lög um umhverfismat áætlana sem varða skipulagsáætlanir sveitarfélaga og áætlanir stjórnvalda í einstökum málaflokkum, s.s. um samgöngur og orkumannvirki. Lögin verða kynnt á opnum fundi á Þjónustuskrifstofu verkalýðsfélaganna, Austurvegi 56, 3. hæð, mánudaginn 9. október kl. 14.00 ásamt breytingum á lögum vegna efnistöku í eldri námum. Fulltrúar ... Lesa meira
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar SASS
Fyrsti fundar nýkjörinnar stjórnar SASS var haldinn í gær, 4. október. Í stjórninni eru Gunnar Þorgeirsson formaður, Björn B. Jónsson varaformaður, Jóna Sigurbjartsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Elliði Vignisson. Fundinn sátu allir stjórnarmenn nema Elliði Vignisson sem var í símasambandi. Fjallað var um fjölmörg mál ... Lesa meira
Félag um samgöngubætur á Suðurlandsvegi stofnað
Í gær , 25. september, var undirritað samkomulag um stofnun Suðurlandsvegar ehf. Stofnendur félagsins eru Sjóvá, Sveitarfélagið Árborg, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Mjólkursamsalan og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um flýtingu Suðurlandsvegar og benda á nýja valkosti í því samhengi. Hlutafé félagsins er ... Lesa meira
Starfsmannabreytingar hjá SASS
Nú í september urðu breytingar á skrifstofu SASS. Bóel Sigurgeirsdóttir bókari sem starfað hefur á skrifstofunni undanfarin 7 ár hættir þar sem hún er að hefja háskólanám. Við starfi hennar tekur Ragnheiður Óskarsdóttir sem um árabil hefur starfað á skrifstofu Alpan á Eyrarbakka. Um leið og við bjóðum Ragnheiði velkomna ... Lesa meira
Nýafstaðið ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið 7. og 8. september sl. á Hótel Örk í Hveragerði. Þingið sóttu um 100 manns, þar af 53 kjörnir fulltrúar. Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar. Þingið samþykkti ályktanir um ymis mál, sem hægt er að kynna sér nánar hér ... Lesa meira
Aðalfundur SASS 7. og 8. september 2006 Efni vegna Aðalfundar SASS
Eins og fram hefur komið áður verður ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga haldið á Hótel Örk í Hveragerði dagana 7. og 8. september nk. Á þinginu verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Á þinginu verða einnig haldin erindi um ýmis mál sem varða sveitarfélögin ... Lesa meira
Dagskrá ársþings
Eins og fram hefur komið áður verður ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga haldið á Hótel Örk í Hveragerði dagana 7. og 8. september nk. Á þinginu verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Á þinginu verða einnig haldin erindi um ýmis mál sem varða sveitarfélögin ... Lesa meira
Miklar breytingar í sveitarstjórnum á Suðurlandi
Nú hafa nýkjörnar sveitarstjórnir á Suðurlandi formlega tekið við völdum. Miklar breytingar hafa orðið, sveitarstjórnum hefur fækkað úr 16 í 14 með tilkomu hins nýja Flóahrepps og sveitarstjórnarmönnum hefur fækkað um 10 og eru þeir nú 88 talsins. Verulegar mannabreytingar urðu í sveitarstjórnunum, af 88 sveitarstjórnarmönnum eru 59 nýir eða ... Lesa meira