fbpx

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið 7. og 8. september sl. á Hótel Örk í Hveragerði.  Þingið sóttu um 100 manns, þar af 53 kjörnir fulltrúar.  Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar.  Þingið samþykkti ályktanir um ymis mál, sem hægt er að kynna sér nánar hér á síðunni.  Á þinginu voru kosnar nýjar stjórnir og nefndir.  Formenn stjórna eru Gunnar Þorgeirsson sem var endurkjörinn formaður SASS, Snorri Finnlaugsson formaður Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Elfa Dögg Þórðardóttir formaður stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands og Kristín Traustadóttir formaður stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands.  Heilbrigðisnefnd Suðurlands á eftir að skipta með sér verkum.