fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)

Megin starfsemi SASS felst í hagsmunagæslu fyrir íbúa og sveitarfélög á Suðurlandi. Önnur hlutverk tengjast m.a. samningum og framlögum frá hinu opinbera. Á grundvelli slíkra samninga veitir SASS m.a. ráðgjöf, styrki og aðra þjónustu til handa atvinnu- og menningarlífi á Suðurlandi. SASS vinnur einnig að ýmsum greiningar- og þróunarverkefnum til hagsbóta fyrir landshlutann á sviði byggðaþróunar og heldur utan um rekstur ákveðinna sérverkefna.

Auk þess sinnir SASS skrifstofuþjónustu fyrir byggðasamlög og samstarfsverkefni, í samræmi við samþykktir SASS um stuðning við starf annarra byggðasamlaga, eftir óskum þeirra hverju sinni.