fbpx

Í gær , 25. september, var undirritað samkomulag um stofnun Suðurlandsvegar ehf.  Stofnendur félagsins eru Sjóvá, Sveitarfélagið Árborg, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og         Grafningshreppur, Mjólkursamsalan og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.  Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um flýtingu Suðurlandsvegar og benda á nýja valkosti í því samhengi.  Hlutafé félagsins er tíu milljónir króna.  Á fundinum voru frétta- og blaðamönnum kynnt markmið félagsins nánar, en eitt meginmarkmið  þess er að auka umferðaröryggi og fækka slysum, en fram kom að 52 hafa látist í umferðarslysum á Suðurlandsvegi frá árinu 1972.  Þá kom einnig fram að umferð um veginn hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og sterkar vísbendingar um að sú þróun haldi áfram.  Með sama áframhaldi má búast við að umferðin um veginn tvöfaldist á næstu tíu árum og verði á bilinu 15 – 20 þúsund bílar á dag að meðaltali.  Til samnburðar fara að meðaltali um 10 þúsund bílar um Reykjanesbraut daglega.