fbpx

Íbúðalánasjóður í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir fundi á Selfossi um „Leiguheimili“. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 6. október, að Austurvegi 56, 3 hæð,  hefst kl. 10:00 og stendur til 11:30. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Markmið fundarins er að fjalla um þau tækifæri sem felast í nýrri lagasetningu um almennar íbúðir sem fengið hafa heitið „Leiguheimili“.  Sjóðurinn vill eiga milliliðalaust samtal við sveitarfélög og hagsmunaaðila á Suðurlandi um framkvæmdina.