fbpx

Í tilefni af 10 ára afmæli Sunnulækjarskóla á Selfossi bjóða nemendur skólans öllum sem möguleika hafa á að koma og skoða skólann og verkefni nemenda milli klukkan 08:30 og 13:00, fimmtudaginn 16. október. Vonast er eftir því að sem flestir mæti, mömmur, pabbar, afar, ömmur, frændur, frænkur og gamlir nemendur. Í tilefni af afmælinu er hafin útsending frá nýrri útvarpsstöð, Útvarp Sunnulækjarskóli. Útsendingar nást á Selfossi og nágrenni á tíðninni 89,9 MHz.

Sunnulækjarskoli