fbpx

 

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, og áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. 

Umsóknarfrestur er til miðnættis 3. mars 2024.  Byggðarannsóknasjóður hefur allt að 17,5 m.kr. til úthlutunar. Styrkir verða veittir til eins árs.

Í umsóknum skal koma fram greinargóð lýsing á rannsókn, markmiðum, ávinningi, nýnæmi og hvernig rannsóknin styður við tilgang sjóðsins. Gera þarf grein fyrir tengslum rannsóknar við byggðaþróun og eftir atvikum hvernig rannsókn fellur að áherslum byggðaáætlunar 2022-2036.

Þættir sem að hafa vægi við mat á umsóknum: 

  • Hvernig verkefnið styður við tilgang sjóðsins og tengist byggðaþróun. 
  • Vísindalegt og hagnýtt gildi verefnisins. 
  • Nýnæmi verkefnis.
  • Gæði umsónar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti).

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar. Sjá nánar:

Frekari upplýingar um Byggðaransóknasjóð er að finna á vef Byggðastofnunar.

Einnig veitir nánari upplýsingar Hanna Dóra Björnsdóttir hannadora@byggdastofnun.is / sími 455 5454