fbpx

 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu. Hlutverk Lóu er að styrkja nýsköpun á landsbyggðinni sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Er styrkjunum aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni. 

Lóu styrkir eru veittir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi samkvæmt skilgreiningu OECD þar sem að nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættar vöru, þjónustu eða ferils, nýttar aðferðar til markaðssetningar eða nýttar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.

Styrkjunum er úthlutað til eins árs í senn og getur hvert verkefni fengið styrk sem að nemur allt að 20% af heildarúthlutun hvers árs. Í ár er heildarfjárhæð Lóu 150 m.kr. sem er hækkun frá fyrri árum þegar að upphæðin var 100 m.kr. Að hámarki geta 50 m.kr. farið til verkefna sem tengjast stuðningsumhverfi nýsköpunar, þar sem a.m.k. 100 m.kr. af heildarúthlutun verður úthlutað beint til verkefna á vegum einkaraðila. Krafa er gerð um að lágmarki 30% mótframlag frá umsækjanda og samstarfsaðilum (ef við á). 

Umsóknarfrestur í Lóu er til og með 4. apríl 2024. Áætlað er að úthlutun fari fram í maí. 

Nánari upplýsingar um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landbyggðina er að finna hér

Umsónir í Lóu berist rafrænt á minarsidur.hvin.is