fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) og Orka náttúrunnar (ON) hafa gert með sér samkomulag um að efna til hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi á þessu ári.

Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um nýtingu varmaorku sem víða finnst í formi jarðhita á Suðurlandi og býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag. Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem eru í orkunni, auka fjölbreytni í atvinnulífi með umhverfismál að leiðarljósi og vinna að nýsköpun í orkutengdri starfsemi.

Dómnefnd skipa eftirtaldir aðilar:
Gunnar Þorgeirsson, formaður SASS
Sigurður Þór Sigurðsson, formaður Atorku
Berglind Rán Ólafsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjamarkaða ON
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri NMÍ
Albert Albertsson, stjórnarformaður Íslenska jarðvarmaklasans

Haraldur Hjaltason, ráðgjafi hjá Artemis, hefur verið ráðinn sem verkefnisstjóri og mun hann starfa með dómnefndinni. Samkeppnin sjálf verður auglýst þegar nær dregur.

Nánari upplýsingar veita:
Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS bjarni@sudurland.is
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, si@nmi.is

Á myndinni eru f.v. Próf. Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri NMÍ, Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri NMÍ, Berglind Rán Ólafsdóttir, forstöðum. fyrirtækjamarkaða ON og Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS.