fbpx

 

Byggðastofnun, HMS, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök iðnaðarins og SASS standa fyrir opnum fundi um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á Suðurlandi. Fyrri fundurinn verður haldinn á Selfossi miðvikudaginn n.k., 15. nóvember frá kl. 11:30-13:00.Fundurinn er hluti af fundaröð ýmissa aðila sem láta sig varða atvinnu- og byggðaþróun í landsbyggðunum og verður einnig boðið upp á fund á Höfn í Hornafirði 20. nóvember á Hótel Höfn og hefst hann kl. 11:45 og húsið opnar 11:30.

Á fundinum verður farið yfir stöðu á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og uppbyggingu íbúða á landsbyggðinni.

Húsið opnar fimmtán mínútum áður en fundur hefst og boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri á Selfossi verður Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar.

Við bjóðum alla velkomna á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur 15. nóvember og á Höfn 20. nóvember.
Hlekk á facebook viðburðinn á Selfossi má finna hér og Höfn í Hornafirði hér. 

 

Dagskrá á Selfossi

Tækifæri og áskoranir á Suðurlandi
Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS

Staða íbúðauppbyggingar
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS

Stafræn byggingarleyfi
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS

Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun

Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN

Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu
Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI

 

Sjá auglýsingu (.pdf)