fbpx

Undanfarna mánuði hefur farið fram rannsókn á samstarfi sveitarfélaga á vegum RHA-Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri. Safnað var upplýsingum um samstarfsverkefni sveitarfélaga innan hvers landshluta og þau greind eftir málaflokki, sveitarfélögum sem vinna saman, rekstrarformi o.fl. Einnig fór fram netkönnun meðal sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga og kannað viðhorf til samstarfs sveitarfélaga. Var rannsóknin styrkt af nýstofnuðum Byggðarannsóknasjóði vorið 2015.

29. apríl verður haldin málstofa þar sem greint verður frá afrakstri verkefnisins

Dagskráin er hér