fbpx

Landstólpinn Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega. Viðurkenningin er hvatning, því hugmyndin að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni. Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða hóp/verkefni á vegum fyrirtækis eða einstaklinga, fyrir framtak sem vakið hefur athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. Hér með er lýst eftir tillögum um handhafa Landstólpans 2015. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.

Hafa má í huga hvort viðkomandi hafi:

  • – gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
  • – aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • – orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
  • – dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni. Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af Þórhildi Kristjánsdóttur frá Þóa-Art.

Tillögur sendist á netfangið: landstolpinn@byggdastofnun.is Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir, s. 4555400. Frestur til að til að koma tillögum til skila rennur út mánudaginn 16. mars 2015