fbpx

Eva Björk Harðardóttir afhendir Rut Ingólfsdóttur og Birni Bjarnasyni viðurkenningu fyrir menningarstarf að Kvoslæk. Mynd: Gunnar Páll Pálsson

Á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var í fjarfundi dagana 29. og 30.
október var Rut Ingólfsdóttur og Birni Bjarnasyni að Kvoslæk í Fljótshlíð veitt Menningarverðlaun Suðurlands 2020. Verðlaunin eru samfélags- og hvatningarverðlaun á sviði menningar á Suðurlandi. Er þetta í annað sinn sem verðlaunin eru veitt. Alls skiluðu sér inn 15 tilnefningar um 12 verkefni.
Samkeppni um verðlaun af þessu tagi er mikil enda menningarlíf á Suðurlandi blómlegt og valið var því erfitt. Mikil breidd var í tilnefningum og gæðum þeirra. Tilnefningarnar eru aðeins toppurinn á ísjakanum í því mikla menningarstarfi sem á sér stað í fjórðungnum.
Rut og Björn hafa staðið fyrir menningarviðburðum á borð við tónleika og fyrirlestrarraðir frá
árinu 2011. Tónleikarnir eru klassísks eðlis og hafa Rut og Björn fengið til liðs við sig fólk bæði úr heimahéraði sem og af höfuðborgarsvæðinu til að flytja fyrir gesti tónverk eftir nokkra þekkta Íslendinga og Bach, Mozart, Mendelssohn svo eitthvað sé nefnt. Rut hefur auk þess átt í samstarfi við kirkjukóra frá Breiðabólstað og frá Odda og Þykkvabæ og hélt hópurinn tónleika í þrennum kirkjum á Suðurlandi. Hafa Rut og Björn lagt sig fram um að efla tónlistarstarf í sveitarfélaginu og hafa t.a.m. boðið nemendum Tónlistarskóla Rangæinga á tónleika, sem haldnir hafa verið í Hlöðunni að Kvoslæk, til að hvetja þau til
frekara tónlistarnáms. Klassíska tónlistin sem ómar frá Kvoslæk lyftir fólki og menningunni með og stuðla þau Rut og Björn að fjölbreyttri menningarupplifun í sveitarfélaginu sem og Suðurlandi.
Segir í rökstuðningi dómnefndar að hjónin á Kvoslæk hafi með drifkrafti sínum og eljusemi vakið verðskuldaða athygli á metnaðarfullum menningarviðburðum og hafi komið með ferskan innblástur í menningarlífið á staðnum. Menningarstarfsemi þeirra hafi vakið eftirtekt fyrir fjölbreytni og gefið jákvæða mynd af sunnlenskri menningu. Viðburðir þeirra hafi stuðlað að þátttöku íbúa á Suðurlandi og um leið laðað gesti að landshlutanum. Fyrirlestrarnir hafi í flestum tilvikum fjallað um efni sem tengjast Suðurlandi og þannig hafi þau einnig vakið athygli á menningararfi Sunnlendinga.