fbpx

Myndbönd

Þann 7. febrúar síðastliðinn fór fram kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands, fór fundurinn fram í gegnum samskiptaforritið Teams. Nú má horfa á upptökuna sem má finna hér. Á fundinum fór sviðstjóri þróunarsviðs SASS, Þórður Freyr Sigurðsson, yfir hvernig sjóðurinn virkar og hvað það er sem að umsækjendur þurfa að huga að við gerð umsókna í sjóðinn. 

Morgunverðafundur SFS – 11.3.20 Frummælendur eru Svanfríður Jónasdóttir ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður, Sveinn Agnarsson prófessor við viðskiptafræðideild HÍ, Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis hf., og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA. Fundinn má sjá hér.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) boða til opins fundar um gagnsæi í sjávarútvegi, miðvikudaginn 26. febrúar. Frummælendur eru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þau munu reifa hugmyndir sínar um hvernig auka megi gagnsæi í sjávarútvegi. Að því loknu fara fram

Það er ekki langt síðan að það var töluvert vandamál að setja upp fjarfundi. Þá var sérstaklega erfitt ef átti að hafa myndfundi, deila skjám eða teikna á töflu. Upplifunin var oft á tíðum óþægileg og fólk nennti hreinlega ekki að standa í þessu. En nú er öldin önnur með tólum eins og Microsoft Teams.

Þann 6. febrúar 2020 hélt Nýsköpunarnefnd FKA í samstarfi við Suðurlandsdeild FKA málþing á Skyrgerðinni í Hveragerði, þar sem spurt var “Get ég fjármagnað verkefnið mitt”. Þær Ragnhildur Ágústdóttir stofnandi Icelandic Lava Show, Hulda Brynjólfsdóttir stofnandi Uppspuna, Smáspunaverksmiðju og Erna Hödd Pálmadóttir stofnandi Beauty by Iceland sem allar hafa hlotið styrk í gegnum Uppbyggingarsjóð, kynntu

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) boða til opins fundar um umhverfismál í sjávarútvegi, miðvikudaginn 4. mars, undir yfirskriftinni, Hvernig getur sjávarútvegur gert betur í umhverfismálum? Fundurinn verður í veitingahúsinu Messanum í húsi Sjóminjasafnsins á Granda og hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 11:00. Húsið verður opnað kl. 8:30 og boðið er upp á morgunverð. Til að sjá