427. fundur stjórnar SASS haldinn í Tryggvaskála, Selfossi, föstudaginn 25. september 2009 kl. 12.00 Mætt: Sveinn Pálsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Margrét Katrín Erlingdóttir, Guðmundur Þór Guðjónsson, Elliði Vignisson (í síma) og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Reynir Arnarson, Unnur Brá Konráðsdóttir og varamenn þeirra boðuðu forföll. Dagskrá: 1. Fundargerð menntamálanefndar SASS frá
Menningarveislan Regnboginn, verður haldin í Vík í Mýrdal dagana 2.-4. október nk. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá listviðburða og er aðgangur ókeypis. Meðal atriða verða leiklist, tónlist og upplestur. Bítlalögin í léttri kammersveiflu, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson með ljúfa tóna. Poppveisla hljómsveita úr Mýrdælnum, kórakeppni, söngvarakeppni og fjölbreytt aðkoma nemenda leikskóla, grunnskóla og
Ársþing SASS verður haldið á Kirkjubæjarklaustri 1. og 2. nóvember nk. Á ársþinginu verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Dagskrá þingsins verður kynnt hér á heimasíðunni þegar nær dregur.
Laugardaginn 19. september er uppskeruhátíð Hrunamanna. Fjölbreytt dagskrá er í boði. Messa í Hrunakirkju kl. 11:00 Uppskerumarkaður í félagsheimilinu kl. 13:00-17:00 þar sem fjölbreytt úrval verður af glænýjum matvælum úr sveitinni, Einnig handverk heimamanna og ljósmyndasýning Sigurðar Sigmundssonar. Fulltrúar Heilsuþorps á Flúðum og Byggðar á Bríkum kynna hugmyndir um nýja byggð. Kvenfélagið verður með kaffiveitingar.
Í kvöld er stofnfundur MÁLEFLIS, hagsmunasamtaka í þágu barna með tal-og málþroskaröskun. Fundurinn verður haldinn kl. 20 í fyrirlestrarsalnum Skriðu við Stakkahlíð, fyrrum Kennaraháskóla Íslands (nú Menntavísindasvið Háskóla Íslands)
Á fundi stjórnar SASS, sem haldinn var í dag 11. september, var fjallað um ummæli tveggja þingmanna í garð sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi vegna aðkomu þeirra að skipulagsmálum virkjana sem fyrirhugað er að byggja . Eftirfarandi bókun var af þessu tilefni samþykkt samhljóða: ,,Samtök sunnlenskra sveitarfélaga harma þau ummæli sem fallið hafa í garð sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi vegna
426. fundur stjórnar SASS haldinn að Austurvegi 56, Selfossi föstudaginn 11. september 2009 kl. 14.00 Mætt: Sveinn Pálsson, Margrét Katrín Erlingdóttir, Guðmundur Þór Guðjónsson, Elliði Vignisson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Sigurður Ingi Jóhannsson og varamaður hans boðuðu forföll. Dagskrá 1. Fundargerðir velferðarnefndar SASS frá 18. ágúst og 1. september
Stofnfundur hagsmunasamtaka í þágu barna og unglinga með tal- og málþroskaröskun. Í undirbúningi er stofnun hagsmunasamtaka í þágu barna og unglinga með tal- og málhömlun. Í undirbúnings -hópnum eru 10 manns, þar af 6 af Suðurlandi. Þetta er hópur vaskra foreldra ásamt þremur talmeinafræðingum sem láta sig velferð barna með málþroskaröskun varða og eru
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í annað sinn nú í haust. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar; einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög
Á fundi stjórnar SASS í dag, 14. ágúst, var fjallað um forgangsröðun vegaframkvæmda vegna hugsanlegrar fjármögnunar lífeyrissjóða. Eftirfarandi ályktun var samþykkt: ,,Stjórn SASS ítrekar afstöðu samtakanna um nauðsyn tvöföldunar Suðurlandsvegar á milli Selfoss og Reykjavíkur. Við forgangsröðun framkvæmda í vegagerð hlýtur tvöföldun Suðurlandsvegar að vera í fyrsta sæti. Kemur þar margt til. Í fyrsta lagi