fbpx

Yfir 80 aðilar taka þátt í að bjóða upp á viðburði um allt Suðurland fyrstu helgina í nóvember þegar haldin verður Safnahelgi á Suðurlandi. Það eru Samtök safna á Suðurlandi og Matarklasi Suðurlands sem standa fyrir hátíðinni með veglegum stuðningi Menningarráðs Suðurlands.
Opnunarhátíðin verður í Listasafni Árnesinga í Hveragerði fimmtudaginn 4.nóvember og í kjölfarið er hægt að fara um allt svæðið þar sem dyr safna, setra, veitingastaða og sýninga standa gestum opnar alla helgina.

Ekki missa af sýningum, tónleikum, bændamörkuðum og handverksmörkuðum, leiksýningum, söguferðum, fræðsluerindum og upplestrum um allt suðurland auk gómsætra máltíða þar sem hráefni úr heimabyggð fær að njóta sín.

VELKOMIN Á SAFNAHELGI Á SUÐURLANDI

Nánari upplýsingar á www.sunnanmenning.is