fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun  fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið  er  hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í þriðja sinn nú í vetur.  Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir,  kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög  o.fl.

 

Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs.  Jafnframt fylgir  verðlaununum  formleg viðurkenning.  Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands  20 janúar nk.

 

Hér með er óskað eftir tilnefningum  til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa  allir þeir sem tengjast skóla-  og menntunarstarfi með einhverjum hætti.  Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur.  Menntamálanefnd SASS velur úr tilnefningum og veitir verðlaunin.  Tilnefningar skulu hafa borist  til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 1. desember  nk.

 

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga