Nýlega var undirritaður samningur á milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Týru hugverks og handverks ehf. vegna áhersluverkefnisins „Skjálftinn – greining og undirbúningur fyrir jafna þátttöku grunnskóla á Suðurlandi“. Markmið verkefnisins er að tryggja að hæfileika- og menningarverkefnið Skjálftinn geti vaxið og dafnað þannig að öllum grunnskólabörnum á Suðurlandi standi til boða að taka þátt,
SASS og Háskólafélag Suðurlands hafa hleypt af stokkunum nýju og metnaðarfullu áhersluverkefni sem ber heitið „Háskólabrú fyrir innflytjendur“. Verkefnið, sem hófst formlega í janúar og stendur út árið 2026, miðar að því að kortleggja þarfir og forsendur þess að íbúar af erlendum uppruna á Suðurlandi eigi auðveldara með að hefja háskólanám hér í landshlutanum.
Þórður Freyr Sigurðsson hefur látið af störfum hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eftir að hafa starfað hjá samtökunum í rúman áratug. Þórður hóf störf hjá SASS árið 2013 og hefur lengst af gegnt stöðu sviðsstjóra þróunarsviðs. Á starfsferli sínum hjá samtökunum bar Þórður ábyrgð á málefnum byggðaþróunar og gegndi lykilhlutverki í mótun margra af
Starfsfólk SASS sótti nýverið Stafræna ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var í Grósku. Á dagskránni voru mörg fróðleg erindi, þar á meðal frá KOMBIT í Danmörku. KOMBIT er samstarfsvettvangur í eigu danskra sveitarfélaga sem sérhæfir sig í upplýsingatækni og stafrænni þróun. Hlutverk þeirra er að kaupa inn, reka og þróa nútímalegar upplýsingatæknilausnir sem
ART teymi Suðurlands hefur tekið í notkun nýtt merki (lógó). Nýja merkið er stílhreint í útliti og ber með sér sterka og skýra skírskotun í þau gildi og þá hugmyndafræði sem teymið vinnur eftir. Barnið er miðpunktur og fjölskyldan er heildin Merkið sýnir uppdrátt af fjölskyldu þar sem barnið er miðpunktur. Þetta endurspeglar grunninn
Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Þótt löng hefð sé fyrir hátíðarhöldum á þessum tíma verður nú sérstök áhersla lögð á barnamenningu, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt
Vinnan við mótun nýrrar og heildstæðrar Nýsköpunarstefnu fyrir Suðurland er komin á fullt skrið. Fyrstu tvær vinnustofurnar hafa nú þegar farið fram með frábærri þátttöku og gagnlegu samtali lykilaðila í landshlutanum. Stefnan, sem áætlað er að verði tilbúin árið 2027, er leidd af Háskólafélagi Suðurlands í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og nýtur styrks
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um Lóu, nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina árið 2026. Heildarfjárhæð Lóu í ár er 100 milljónir króna og er umsóknarfresturinn til og með 30. mars næstkomandi. Hlutverk og markmið Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Hlutverk þeirra er að auka við nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við eflingu byggða