Helgina 19. – 20. október er boðið til íbúaþings í Skaftárhreppi á vegum Byggðastofnunar, Skaftárhrepps, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Háskólans á Akureyri. Þingið hefst kl. 11 á laugardegi og stendur til kl. 16 og síðan frá kl. 11 – 15 á sunnudeginum. Þátttakendur á þinginu móta sjálfir dagskrána. Allt er til umræðu, staða og framtíð
haldinn að Austurvegi 56, mánudaginn 7. október 2013 kl. 12.30 Mætt: : Gunnar Þorgeirsson, Haukur Guðni Kristjánsson, Aðalsteinn Sveinsson, Unnur Þormóðsdóttir, Sandra Hafþórsdóttir, Jóhannes Gissurarson (í síma), Gunnlaugur Grettisson (Í síma) og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Reynir Arnarson og varamenn þeirra boðuðu forföll. Gestur fundarins: Kristín Hreinsdóttir Dagskrá 1. Dagskrá ársþings
Ársþing SASS verður haldið dagana 24. og 25. október nk. Að þessu sinni fer þingið fram á Hótel Heklu, Skeiða-og Gnúpverjahreppi. Hér má sjá Dagskrá ársþings 2013
Miðvikudaginn 23. október verður haldið málþing um sunnlenska ferðaþjónustu. Málþingið verður haldið í tengslum við ársþing SASS og haldið á Hótel Heklu. Áhersla verður á samræðu milli hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Með erindi á málþinginu verða Sandra Brá Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri Friðar & Frumkrafta, Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Miðvikudaginn 25. september var haldinn stofnfundur klasans Fuglar á Suðurlandi. Markmiðið með klasanum er að bæta og byggja upp innviði ferðaþjónustunnar á Suðurlandi, með tilliti til fuglatengdrar ferðaþjónustu og möguleikum á að markaðssetja Suðurland sem fuglaskoðunarsvæði á alþjóðavísu. Ráðinn var klasastjóri, tímabundið til verkefnisins, Guðríði Ester Geirsdóttir. Verkefnastjóri er Þórður Freyr Sigurðsson, ráðgjafi hjá SASS.
haldinn í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli föstudaginn 20. september 2013, kl. 10.00 Mætt: Gunnar Þorgeirsson, Haukur Guðni Kristjánsson, Helgi Haraldsson, Aðalsteinn Sveinsson (varamaður Unnar Þormóðsdóttur), Sandra Hafþórsdóttir, Jóhannes Gissurarson, Reynir Arnarson, Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri og Þórður F. Sigurðsson ráðgjafi sem ritaði fundargerð. Gunnlaugur Grettisson og varamaður hans boðuðu forföll. Gestir fundarins: Einar Sveibjörnsson
Ferðamálaþing 2013 verður haldið á Hótel Selfossi 2. október næstkomandi. Yfirskrift þingsins er Ísland – alveg milljón! – Skipulag, fyrirhyggja og framtíðarsýn í íslenskri ferðaþjónustu.Að þessu sinni er undirbúningur og framkvæmd ferðamálaþings samstarfsverkenfi Ferðamálastofu og Skipulagsstofnunar.Sjá nánar á www.skipulagsstofnun.is og/eða á www.ferdamálastofa.is Dagskrá
Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verður haldinn í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli föstudaginn 27. september nk. Dagskrá landsfundarins má sjá hér
Í kvöld, 17. september leikur Jörg E. Sondermann, organisti Selfosskirkju verk eftir J. S. Bach og Felix Mendelssohn-Bartholdy. Lokatónleikar verða þriðjudaginn 24. september, Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju leikur verk eftir J. S. Bach, Peter Eben og fleiri. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20.30, aðgangur er ókeypis. Eftir tónleikana verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
IÐAN fræðslusetur efnir til viku símenntunar í iðnaði á Suðurlandi 23. – 27. september. Í boði verður fjöldi námskeiða, kynning á iðn- og verknámi auk þess sem starfsmenn IÐUNNAR munu heimsækja vinnustaði. Skráning á námskeið og nánari upplýsingar um vikuna má finna á www.idan.is/sudurland. Í tengslum við vikuna verður haldið málþing á Hótel Selfossi þann