fbpx

Alls eru 184 listar í framboði til 74 sveitarstjórna í kosningunum 31. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2.916 einstaklingar, 1536 karlar og 1380 konur. Karlar eru 53% frambjóðenda, konur 47%. Þessi hlutföll eru hin sömu og voru í síðustu sveitarstjórnarkosningum, árið 2010.

Listakosningar í 53 sveitarfélögum

Í komandi kosningum eru listakosningar í 53 sveitarfélögum því þar hafa verið lagðir fram fleiri en einn listi og mun því hlutfallskosning fara þar fram. Í þremur sveitarfélögum kom aðeins fram einn listi og er því sjálfkjörið í þær sveitarstjórnir. Óbundnar kosningar verða í 18 sveitarfélögum þar sem enginn listi kom fram. Í óbundnum kosningum eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því.

Elstu og yngstu frambjóðendurnir

Elsti frambjóðandinn í  kosningunum 31. maí næstkomandi er 96 ára gamall karlmaður, fæddur 14. apríl 1918. Sá næstelsti er á 91. aldursárinu. Verma þeir báðir heiðurssæti. Tvær elstu konurnar eru fæddar 1927, eru á 87. aldursárinu, og eru einnig í heiðurssætum.

Yngsti frambjóðandinn er 18 ára, fæddur 28. apríl 1996. Af tæplega þrjú þúsund einstaklingum, sem eru á framboðslistum, eru sjö frambjóðendur 18 ára – tvær stelpur og fimm strákar.

 Meðalaldur frambjóðenda

Á framboðslistum í sveitarstjórnarkosningunum  31. maí næstkomandi eiga sæti tæplega þrjú þúsund einstaklingar og er meðalaldur þeirra 44,4 ár. Þetta er mjög áþekkt því sem var í kosningunum 2010 en þá var  meðaltalið 44,8 ár.  Í sveitarstjórnarkosningunum 2002 og 2006 var meðalaldur frambjóðenda aftur á móti 43 ár. Meðalaldur karla er hærri en kvenna, eða 45,5 ár samanborið við 43,1 ár hjá konum.

Heimild: Vefur Innanríkisráðuneytisins www.kosning.is