fbpx

Fréttir

14. apríl 2008

Um 70 manns sótti málþing um málefni innflytjenda sem haldið var í Þorlákshöfn s.l. föstudag. Þingið hófst með ávarpi Unnar Þormóðsdóttur  formanns velferðarmálanefndar SASS.  Á málþinginu voru haldin fjölmörg erindi þar sem varpað var ljósi á ýmsar hliðar innflytjendamála.   Hægt er að sjá hluta fyrirlestranna á síðunni hér til vinstri. Fyrirlesarar voru eftirtaldir: Hildur Jónsdóttir Innflytjendaráði, Unnur Dís

29. mars 2008

Fyrsti hluti nýrrar 5.256 fermetra viðbyggingar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) á Selfossi var formlega tekin í notkun 24. janúar sl.. Nýbyggingin er þrjár hæðir auk kjallara. Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna er 1,5 milljarðar króna. Framkvæmdir við bygginguna hófust síðla árs 2004. Núverandi húsnæði sjúkrahússins er um 4.500 fermetrar, þannig að um tvöföldun er að ræða

28. mars 2008

Velferðarmálanefnd Samtaka  sunnlenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands efna  til  málþings í Versölum Ráðhúsi Ölfuss, Þorlákshöfn,  um málefni innflytjenda á Suðurlandi föstudaginn 11. apríl nk. kl. 10.00 – 16.00.  Skráning á málþingið er á sass@sudurland.is eða í síma 480 8200.  Þátttökugjald er kr. 2000, hádegisverður innifalinn.   Á málþinginu verða flutt fjölmörg erindi og umræðuhópar munu

19. mars 2008

Samkvæmt tilkynningu frá samgönguráðuneytinu sem birtist 13. mars sl. verður tvöföldun Suðurlandsvegar frá Litlu kaffistofu að Hveragerði meðal þeirra framkvæmda sem felast í viðauka við samgönguáætlun 2007-2010, sem ráðuneytið kynnti. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin hefjist á fyrri hluta árs 2009. E innig er unnið að undirbuningi tvöföldunar  annars vegar á milli Litlu kaffistofunnar og

27. desember 2007

Samkvæmt nýútgefnum tölum frá Hagstofunni fjölgaði Sunnlendingum um 561 á síðasta ári eða um 2,45%  og voru samtals 23.478 1. desember sl.  Fjölgunin var umfram landsmeðaltal, en landsmönnum fjölgaði um 1,8%á árinu.  Hlutfallslega var fjölgunin mest í Ásahreppi eða rúm 8% en tölulega var fjölgunin mest í Árborg en þar fjölgaði íbúum um 285 og eru

4. desember 2007

Menningarráð Suðurlands úthlutaði styrkjum  til menningarstarfs á Suðurlandi við  hátíðlega athöfn í Listasafni Árnesinga í Hveragerði sl.sunnudag.   Ávörp fluttu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Róbert Marshall aðstoðarmaður samgönguráðherra og  Jóna Sigurbjartsdóttir formaður Menningarráðs Suðurlands.  Styrkina afhentu Þorgerður Katrín og Dorothee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands. Alls voru veittir 55 styrkir samtals um 21.7 milljón króna.  Hæsta styrkinn, 2 milljónir króna, 

9. nóvember 2007

Ársþing SASS var haldið 1. og 2. nóvember sl. á Kirkjubæjarklaustri   Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar.  Á þinginu var Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýrdalshrepps kosinn nýr formaður SASS í stað Gunnars Þorgeirssonar Grímsnes- og Grafningshreppi sem gegnt hefur starfinu undanfarin 4 ár.  Þingið samþykkti fjölmargar ályktanir sem hægt er að nálgast á

25. október 2007

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga verður haldið 1. og 2. nóvember nk. skv. eftirfarandi dagskrá.  Þar verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands.  Ársþingið munu sækja um 70 sveitarstjórnarmenn og embættismenn sveitarfélaganna auk gesta.  Meðal gesta ársþingsins fundarins verða Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og þingmenn kjördæmisins. Meðal fyrirlesara á þinginu

1. október 2007

Undirritaður var samningur um samstarfsverkefni um starf iðjuþjálfa á Suðurlandi þann 27. september 2007.  Samninginn undirrituðu Magnús Skúlason framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Laufey Jónsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Suðurlandi. Samningurinn felur í sér samstarf þriggja stofnana um starf iðjuþjálfa á Suðurlandi. Heilbrigðisstofnun Suðurlands greiðir fyrir 60%, Svæðisskrifstofa

20. september 2007

Verkefnið Safnaklasi Suðurlands hefur nýlega hlotið styrk frá Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja. Helstu markmið með stofnun safnaklasans eru eftirfarandi: · Að efla samstarf safnanna á svæðinu t.d. með sameiginlegum uppákomum og miðlun safnmuna milli safna. · Að kynna öflugt- og fjölbreytt safna- og sýningastarf í sameiginlegum bæklingi og með öðrum hætti. Undirbúningur þessa samstarfs hófst