fbpx

Fréttir

17. september 2009

Laugardaginn 19. september er uppskeruhátíð Hrunamanna. Fjölbreytt dagskrá er í boði. Messa í Hrunakirkju kl. 11:00 Uppskerumarkaður í félagsheimilinu kl. 13:00-17:00 þar sem fjölbreytt úrval verður af glænýjum matvælum úr sveitinni, Einnig handverk heimamanna og ljósmyndasýning Sigurðar Sigmundssonar. Fulltrúar Heilsuþorps á Flúðum og Byggðar á Bríkum kynna hugmyndir um nýja byggð. Kvenfélagið verður með kaffiveitingar.

16. september 2009

Í kvöld er stofnfundur MÁLEFLIS, hagsmunasamtaka í þágu barna með tal-og málþroskaröskun. Fundurinn verður haldinn kl. 20 í fyrirlestrarsalnum Skriðu við Stakkahlíð, fyrrum Kennaraháskóla Íslands (nú Menntavísindasvið Háskóla Íslands)

11. september 2009

Á fundi stjórnar SASS, sem haldinn var í dag 11. september, var fjallað um ummæli tveggja þingmanna  í garð sveitarstjórnarmanna   á Suðurlandi vegna aðkomu þeirra að skipulagsmálum virkjana sem fyrirhugað er að byggja .  Eftirfarandi bókun var af þessu tilefni samþykkt samhljóða: ,,Samtök sunnlenskra sveitarfélaga harma þau ummæli sem fallið hafa í garð sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi vegna

1. september 2009

Stofnfundur hagsmunasamtaka í þágu barna og unglinga með tal- og málþroskaröskun.   Í undirbúningi er stofnun hagsmunasamtaka í þágu barna og unglinga með tal- og málhömlun. Í undirbúnings -hópnum eru 10 manns, þar af 6 af Suðurlandi. Þetta er hópur vaskra foreldra ásamt þremur talmeinafræðingum sem láta sig velferð barna með málþroskaröskun varða og eru

24. ágúst 2009

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun  fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í annað sinn nú í haust. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir,  kennarar; einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög

14. ágúst 2009

Á fundi stjórnar SASS í dag,   14. ágúst, var fjallað um forgangsröðun vegaframkvæmda vegna hugsanlegrar fjármögnunar lífeyrissjóða. Eftirfarandi ályktun var samþykkt: ,,Stjórn SASS  ítrekar afstöðu samtakanna um nauðsyn tvöföldunar Suðurlandsvegar á milli Selfoss og Reykjavíkur.  Við forgangsröðun framkvæmda í vegagerð hlýtur tvöföldun  Suðurlandsvegar að  vera í fyrsta sæti.  Kemur þar margt til.  Í fyrsta lagi

5. ágúst 2009

Laugardaginn 8. ágúst nk. verður hinn árlegi markaðsdagur Sólheima þar sem kynning og sala á lífrænt rækuðu grænmeti frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum verður til sölu ásamt ýmsu lífrænu góðgæti frá Engi, Hæðarenda og fleirum. Nærandi, hin nýja brauð- og matvinnsla Sólheima, mun einnig bjóða upp á nýbakað, lífrænt brauð og annað góðgæti. Markaðurinn er

24. júní 2009

Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ verður haldin í Hveragerði dagana 26. – 28. júní 2009.  Þá munu Hvergerðingar bjóða landsmönnum öllum til veglegrar veislu í samvinnu við öll fagfélög græna geirans á Íslandi.  Er þetta í fyrsta sinn sem haldin er sameiginleg sýning allra þessara aðila.  Þrátt fyrir að um frumraun hér á landi

4. júní 2009

Það verður mikið um að vera um allt Suðurland í sumar.  Fjöldi hátíða er í uppsiglingu.  Nú um helgina eru hátíðir í Flóanum, Þorlákshöfn og Hveragerði og Sjómannadagurinn er að sjálfsögðu haldinn hátíðlegur um allt land á sunnudaginn.    Með því að smella á heiti hátíðanna er hægt að fá nánari upplýsingar. Júní Dagsetning Staðsetning Svæði

11. maí 2009

Á stjórnarfundi SASS 7. maí sl. var samþykkt að halda ársþing SASS 15. og 16. október á Höfn í Hornafirði.   Sveitarfélagið Hornafjörður gerðist aðili að SASS um síðustu áramót og því vel við hæfi að halda ársþingið þar.