4. júlí 2014

haldinn á Hótel Selfossi, miðvikudaginn 2. júlí 2014 kl. 12:00 Mætt:  Gunnar Þorgeirsson,  Reynir Arnarson, Haukur G. Kristjánsson, Helgi Haraldsson, Unnur Þormóðsdóttir, Sandra Dís Hafþórsdóttir, Jóhannes Gissurarson og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri. Gunnlaugur Grettisson og Sigríður Lára Ásbergsdóttir boðuðu forföll. Gunnar setti fund og bauð stjórnarmenn velkomna til síðasta fundar. Reynir þakkaði fyrir gott samstarf og

30. júní 2014

Almennt má segja að jákvæð þróun síðustu ára í fjármálum sveitarfélaga hafi  haldið áfram á árinu 2013. Afkoma sveitarfélaga batnar í heildina tekið og fjárhagslegur styrkur þeirra fer vaxandi. Þetta kemur m.a. fram í 5. tbl. Fréttabréfs hag- og upplýsingasviðs sambandsins sem nú er komið út. Að þessu sinni er fjallað um ársreikninga sveitarfélaga árið

25. júní 2014

Útsvarstekjur á hvern íbúa sveitarfélaganna á Suðurlandi sveiflast mjög mikið á milli áranna 2002-2012, en eru mismiklar eftir sveitarfélögum. Vestmannaeyjar, Hornafjörður og Sveitarfélagið Ölfus, standa upp úr allt tímabilið, sérstaklega þó Vestmannaeyjar og Hornafjörður, sem rekja má til góðæris í uppsjávarafla og vinnslu. Þessar sveiflur endurspegla þann veruleika sem stjórnendur sveitarfélaga standa frammi fyrir. Því

25. júní 2014

„Blóm í bæ“ – stórsýning græna geirans í Hveragerði um helgina Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“  verður  haldin í fimmta sinn í Hveragerði dagana 27. til 30. júní eftir mikla velgengni síðastliðinna ára. Tugir þúsunda hafa sótt hátíðina heim, veðrið hefur ávallt  leikið við Hvergerðinga og gestir hátíðarinnar, sem  hafa því notið fjölbreyttrar sýningar

24. júní 2014

Komið hefur fram hugmynd í Háskóla Íslands um að flytja starfsemi Rannsóknarmiðstöðvar í jarðskjálftaverkfræði til Reykjavíkur. Á stjórnarfundi SASS sem haldinn var í Vestmannaeyjum 4. Júní sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt: ,,Stjórn SASS skorar á innaríkisráðuneytið og Alþingi að hækka framlag til Rannsóknarmiðstöðvarinnar á næstu fjárlögum til samræmis við upphafleg framlög til miðstöðvarinnar. Rannsóknarmiðstöðin gegnir

24. júní 2014

Við hjá SASS ætlum að byrja með nýjan dálk hér til vinstri á síðunni, „Talnarýnir“ þar munum við setja inn ýmsar tölulegar upplýsingar sem tengjast Suðurlandi, m.a. fylgjast með þróun ýmissa málaflokka milli ára.

23. júní 2014

Grunnskólum á Suðurlandi hefur fækkað um 16 á ellefu árum skv. Hagstofu Íslands. Samfelld fækkun nemenda hefur verið frá árinu 2003, þá voru nemendur 4.137. Árið 2012 var nemendafjöldi kominn í 3.599. Næstmesta fækkun nemenda var á milli áranna 2008 og 2009, 112 sem er 2,85% og mesta fækkun á milli áranna 2010 og 2011

20. júní 2014

Á bæjarstjórnarfundi í Sveitarfélaginu Hornafirði 18. júní var Björn Ingi Jónsson kosin nýr bæjarstjóri sveitarfélagsins. Björn Ingi er oddviti Sjálfstæðisflokksins sem er í meirihlutasamstarfi við 3. Framboðið, hann hefur seti í bæjarstjórn Hornafjarðar í 8 ár. Á fundinum var kosið í nefndir og ráð í bæjarráði sem er skipað þrem fulltrúum allra flokka sitja þrjár

19. júní 2014

haldinn í Þekkingarsetrinu í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 4. júní 2014, kl. 14.00 Mætt:  Gunnar Þorgeirsson,  Unnur Þormóðsdóttir, Haukur  Guðni Kristjánsson, Reynir Arnarson, Elín Einarsdóttir varamaður, Gunnlaugur Grettisson  og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri. Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Sandra Dís Hafþórsdóttir og Helgi S. Haraldsson  og varamenn þeirra boðuðu forföll. Einnig sátu fundinn Finnbogi Alfreðsson og Þórður Sigurðsson ráðgjafar hjá