fbpx

Sunnlensk ungmenni áttu sviðið í Skjálftanum sem fór fram í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn laugardagskvöldið 11. nóvember. Skjálftinn byggir á Skrekk, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Skjálftinn fór nú fram í þriðja sinn, en í fyrsta sinn með áhorfendum þar sem fyrstu tvær keppnirnar voru undir áhrifum heimsfaraldurs.

Atriðin komu frá sjö sunnlenskum skólum sem tóku þátt þetta árið og má með sanni segja að atriðin hafi hreyft við þeim 500 áhorfendum sem voru á staðnum enda boðskapurinn oftar en ekki djúpur og með alvarlegum undirtón. Í Skjálftanum, líkt og Skrekk, er lögð mikil áhersla á að ungmennin sjálf þrói atriðin, allt frá hugmynd að lokaútkomu á sviði og því endurspegla atriðin hugðarefni þeirra og má segja að keppnirnar séu farvegur fyrir raddir ungs fólk á hverjum tíma. Ásamt því að móta listrænu hlið atriðanna þurfa þau líka að hugsa um tæknilegar útfærslur, hljóð, ljós, búninga, förðun og fleira og leggja mikinn tíma og vinnu í þetta skapandi ferli sem reynir á þrautseigju, skapandi hugsun og samvinnu.

Dómnefnd skipuðu leikararnir og tónlistarfólkið Júlí Heiðar, Þórdís Björk og dansarinn Ástrós Guðjónsdóttir. Þau fengu það erfiða verkefni að velja á milli atriðanna sem voru öll virkilega metnaðarfull og vel útfærð. Niðurstaðan var að Grunnskólinn í Þorlákshöfn hreppti 3. sætið, Vallaskóli á Selfossi 2. sætið og Grunnskólinn í Hveragerði sigraði Skjálftann 2023.

Siguratriði Hvergerðinga hét Sound of silence og fjallaði um þær alvarlegu afleiðingar sem einelti getur leitt af sér á listrænan hátt og lögðu þau áherslu á mikilvægi þess að eiga heilbrigð og góð samskipti. Það sé ekki nóg að heyra, það þarf líka að hlusta og það sé ekki nóg að tala því við þurfum líka að vita hvað við erum að segja vegna þess að orð hafa áhrif.

Grunnskólinn í Hveragerði – 1. sæti

Skjálftinn var haldinn með stuðningi SASS í gegnum Sóknaráætlun Suðurlands og Sveitarfélaginu Ölfusi.

Skólarnir sem tóku þátt 2023:

  • Grunnskóli Vestamannaeyja
  • Sunnulækjarskóli
  • Reykholtsskóli
  • Bláskógaskóli á Laugarvatni
  • Grunnskólinn í Þorlákshöfn
  • Vallaskóli
  • Grunnskólinn í Hveragerði

 

RÚV fjallaði um málið og má sjá stutt myndbrot með fréttinni hér:  

Fréttin birtist upphaflega á vef Skjálftans, sjá hér.