fbpx

Fréttir

25. október 2010

Fyrr í þessum mánuði var myndaður hópur sem stóð fyrir samstöðufundi fyrir utan Hótel Selfoss til stuðnings við sjúkarhúsin á Suðurlandi vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á fjárlögum 2011.  Á annað þúsund íbúar á Suðurlandi mættu á fundinn þar sem málefnið var kynnt. Nú hefur sami hópur hrint af stað undirskriftarsöfnun meðal Sunnlendinga þar sem skorað er

7. október 2010

Sveitarfélagið Árborg boðar til opins íbúafundar um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vegna tillagna í frumvarpi til fjárlaga um mikla lækkun á rekstrarframlögum til stofnunarinnar. Fundurinn verður haldinn í Fjallasal í Sunnulækjarskóla laugardaginn 9. október n.k. kl. 14:00. Íbúar eru hvattir til að mæta.

7. október 2010

Vegna fyrirhugaðs niðurskurðar í heilbrigðismálum, skv. nýframlögðu fjárlagafrumvarpi, hefur stjórn SASS samþykkt eftirfarandi ályktun: ,,Stjórn Samtaka  sunnlenskra sveitarfélaga mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til heilbrigðisstofnana á Suðurlandi.  Niðurskurðurinn nemur  um 16, 1% hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands ,   23,8% hjá Heibrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum  og 16 %  hjá Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.   Niðurskurðinn leiðir til þess að verulega verður

23. september 2010

Ögmundur Jónasson samgönguráðherra sturtaði fyrsta hlassinu fyrir nýja akbraut vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar í gær 22. september.  Áður hafði Hannes Kristmundsson fært honum skóflu sem Ögmundur tók fyrstu skóflustunguna með og mun hann varðveita skófluna til hvatningar um að halda verkinu áfram. Lengd framkvæmdakaflans er um 6,5 km og það er Ingileifur Jónsson ehf sem sér

15. september 2010

Á ársþingi SASS, sem haldið var 13. og 14. september sl., voru kosnar nýjar stjórnir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands auk ráða og nefnda sem kosnar voru á vegum SASS.  Elfa Dögg Þórðardóttir bæjarfulltrúi í Árborg var kosin formaður stjórnar SASS. Sjá nánar: Stjórnir og nefndir kosnar á Ársþingi SASS 

15. september 2010

  Á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga,  sem haldið var 13. og 14. september, vorusamþykktar fjölmargar ályktanir sem varða ýmis brýn hagsmunamál sunnlendinga.  Þar má nefna samgöngumál, atvinnumál, velferðarmál, skipulags- og byggingarmál auk ýmissa annarra. Ályktanirnar fylgja hér með: Ályktanir ársþings SASS 2010   Velferðarmál Heilbrigðisþjónusta á Suðurlandi Ársþing SASS, haldið á  Selfossi 13. og 14.

15. september 2010

Á ársþingi SASS var undirritaður samningur 13 sveitarfélaga á Suðurlandi um sameiginlegt þjónustusvæði fyrir fatlaða, en um næstu áramót flytjast málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.  Þjónustusvæðið nær til allra sveitarfélaganna í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V- Skaftafellssýslu. Samningurinn er ítarlegur og felur í sér að framkvæmdin verður í höndum einstakra sveitarfélaga en Sveitarfélagið Árborg mun sjá

30. ágúst 2010

     Ársþing SASS verður haldið á Hótel Selfossi 13. og 14. september  nk.  Á ársþinginuverða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurland, sbr. meðfylgjandi dagskrá: Dagskrá ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 13. og 14. september  2010 á Selfossi Mánudagur 13. september 8.30 – 9.00                  Skráning fulltrúa   9.00 –

13. ágúst 2010

Opinn fundur um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og kragasjúkrahúsanna verður haldinn í Tryggvaskála mánudaginn 16. ágúst kl. 15.00 Tilefni fundarins er skýrsla um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu sem unnin var að tilhlutan Heilbrigðisráðneytisins sl. vetur og úttekt Guðrúnar Bryndísar Karlsdóttur verkfræðings á skýrslunni. Á fundinum mun Guðrún Bryndís gera grein fyrir úttekt sinni og Magnús Skúlason

29. júní 2010

Á fundi sem haldinn var 15. júní sl. með fulltrúum landshlutasamtakanna á Suðurlandi, Suðurnesjum og Vesturlandi, sveitarfélaganna Árborgar, Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðar og Akraness og forsvarmanna kragasjúkranna á Selfossi, í Reykjanesbæ, Hafnarfirði og á og Akranesi, gerði Guðrún Bryndís Karlsdóttir verkfræðingur grein fyrir úttekt sinni á skýrslu um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu sem unnin var að tilhlutan