fbpx

Landnámsdagur verður haldinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 14. júní n.k.

Dagskrá:

Áshildarmýri 11:00-11:30 Landnámsdagur settur
Opnunarerindi
Kórsöngur, stjórnandi Þorbjörg Jóhannsdóttir
Formleg afhending Áshildarmýrar frá Árnesingafélagi til Hérðasnefndar Árnesinga

Opin hús 11:00-14:00
Opið fjós.  Kúabændur í Þrándarholti bjóða heim
Opið loðdýrabú.  Minkabændur í Mön bjóða heim.
Þjórsárdalsskógur, skógræktin býður skógarkaffi í bálhúsinu.

Þjóðveldisbær dagskrá kl 14:00-16:00
Víkingar, handverk, leikir, tónlist, dans, erindi, örmessur, landnámssúpa

Nýstofnaðað víkingafélag á Suðurlandi og félagar úr víkingahópnum Einherja mæta.
Sagnamenn: Friðþór Sófus Sigurmundsson og Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur
Örmessur í litlu kirkjunni sr. Axel Árnason Njarðvík
Þjóðlagasveitin Korka flytur tónlist í Þjóðveldisbænum. Ef veður leyfir býðst gestum að stíga hringdans við sagnakvæði og dansa í flutningi Korku.
Kjötsúpa að hætti landnámsmanna í umsjón kvenfélagsins.
(Þjóðveldisbærinn er opinn alla daga 10:00-18:00)

Þjórsárstofa Árnesi opið kl. 9:00-17:00
Kl.16:30 afhjúpun söguskiltis um ferjustaðinn í Þjórsárholti
og sýning á myndverkum yngstu nemenda Þjórsárskóla um landnámsmenn