fbpx

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð, er þetta í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun og er heildarúthlutunarfé sjóðsins 593 m.kr.

Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum:

  • Bára: Styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd í verkefni.
  • Kelda: Styrkir rannsóknarverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurð: Styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
  • Fjársjóður: Styrkir sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsóknarfrestur er til 26. apríl nk. 

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér heimasíðu sjóðsins, www.matvælasjóður.is en þar má finna handbók Matvælasjóðs, upplýsingar um umsóknir og allar nánari upplýsingar um sjóðinn.

Umsækjendur eru hvattir til að hefja vinnu við umsókn í tíma þar sem það getur tekið tíma að skrifa góða umsókn.

SASS og ráðgjafar á vegum samtakanna bjóða upp á ráðgjöf og aðstoða við gerð umsókna í sjóðinn. Sbr. nánari upplýsingar á https://www.sass.is/radgjof/.