fbpx

 

Digi2Market er samstarfsverkefni fjögurra aðila frá Írlandi, Norður-Írlandi, Finnlandi og Íslandi sem vinnur að bættum möguleikum fyrirtækja í hinum dreifðu byggðum landanna til að bæta aðgengi fyrir vörur sínar og þjónustu að mörkuðum utan upprunasvæði síns.

Digi2Market verkefnið mun standa fyrir #ruralbusiness samfélagsmiðladegi þann 19. janúar nk.

Markmiðið er að vekja athygli á því frábæra fólki, þjónustu og vörum fyrirtækja á landsbyggðinni, sem stuðla að svæðisbundnum hagvexti og styðja við samfélög. Við viljum ná eins mörgum með og við mögulega getum á Íslandi, Írlandi, Finnlandi, um alla Evrópu og víðar til að deila efni með #landsbyggdarfyrirtaeki eða #ruralbusiness.

Leitast er eftir því að aðstoða fyrirtæki í landsbyggðunum að vaxa, styrkja viðskiptatengsl út um Evrópu, sem og um allan heim til að kynna þau á sem breiðasta alþjóðlega vettvangi.

Lítil og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni eru mikilvæg svæðisbundnum hagkerfum og samfélögunum sem þau starfa í. En frumkvöðlarnir á bak við fyrirtækin upplifa sig oft einangraða og skynja erfiðleika við að komast inn á stærri markaði. Digi2Market tengir þau við tengslanet á netinu og hjálpar þeim við að auka markaðshlutdeild sína og vaxa. Þú getur hjálpað þeim með því að deila því sem þér finnst best við þau.

 

Hverjir geta tekið þátt?

Fyrirtækjaeigendur, starfsfólk, vinir, fjölskylda, íþróttafélög, samtök, einstaklingar sem eiga viðskipti við fyrirtæki í landsbyggðunum, áhrifavaldar og hver sá sem vill styðja við rekstur á landsbyggðinni.

 

Hverju á að deila?

Segðu frá uppáhalds fyrirtækinu í þinni heimabyggð og hvað það er sem er frábært við það/þau. Sýndu þeim stuðning með því að deila því sem þú þekkir.

Deildu einhverju um fyrirtækið sem þú átt eða starfar hjá, hver starfsemin er, hvernig það þjónustar viðskiptavini og hvernig það styður við samfélagið.

Hvaða fólk er á bak við fyrirtækið? Hvað er það búið að vera lengi í rekstri? Af hverju er gott/gaman að vinna hjá þessu fyrirtæki? Gerir fyrirtækið eitthvað fyrir samfélagið?

Deildu upplýsingum og ráðum um sjálfbæran rekstur og hvernig á að gera reksturinn sjálfbærari.

Að lokum er gott að bæta mynd við póstinn.

Við hvetjum fólk til að nota sína samfélagsmiðla: Instagram, Facebook, Twitter, LinkedIn eða aðra sem eru í notkun.

 

Hérna má finna nánari upplýsingar um hvernig efni þú gætir deilt.