Íbúafundur var haldinn mánudaginn 23. september í Grænumörk á Selfossi þar sem íbúar Árborgar tóku þátt í að forgangsraða atriðum úr SVÓT-greiningu, sem byggir á könnun sem íbúar sveitarfélagsins svöruðu í vor. Fundargestir voru einnig fengnir til að móta framtíðarsýn með skapandi hætti, hvort sem það var í formi skrifa, teikninga eða jafnvel vísugerðar. Að
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýsa laust til umsóknar starf verkefnastjóra með áherslu á umhverfismál. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða, við þróun og framkvæmd fræðslu- og kynningaráætlunar um umhverfismál með sérstakri áherslu á úrgangsforvarnir. Verkefnastjóri mun vinna í nánu samstarfi með sveitarfélögum á Suðurlandi, sorphirðuaðilum og Umhverfisstofnun (Umhverfis- og orkustofnun frá
613. fundur stjórnar SASS fjarfundur 13. september 2024, kl. 12:30-14:15 Þátttakendur: Anton Kári Halldórsson formaður, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Árni Eiríksson, Brynhildur Jónsdóttir, Arnar Freyr Ólafsson, Gauti Árnason, Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir og Njáll Ragnarsson. Jóhannes Gissurarson boðaði forföll og í hans stað kom Einar Freyr Elínarson. Einnig tekur þátt Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri sem jafnframt ritar
Umhverfis, orku og loftlagsráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar. Sigrún hefur verið forstjóri Umhverfisstofnunar frá árinu 2020 og hefur starfað aðumhverfismálum í rúm 20 ár. Hún var sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun frá árinu 2008 og var auk þess staðgengill forstjóra áður en hún var skipuð í embætti forstjóra stofnunarinnar. Náttúruverndarstofnun er ný
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til samfélags- og hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi. Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem SASS mun veita formlega á ársþingi sínu í október 2024. Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi, en mikil gróska hefur verið á þeim vettvangi undafarin
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Umsóknarfrestur er til kl. 13 þriðjudaginn 15. október 2024. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita. Í úthlutuninni er lögð áhersla á minna sótt svæði og
Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi. Evrópurútan mun mæta
612. fundur stjórnar SASS Hestheimum í Ásahrepp 22. ágúst 2024, kl. 12:50-13:55 Þátttakendur: Anton Kári Halldórsson formaður, Árni Eiríksson, Brynhildur Jónsdóttir, Arnar Freyr Ólafsson, Gauti Árnason, Jóhannes Gissurarson, Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir og Njáll Ragnarsson. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir boðaði forföll og varamaður hennar Sandra Sigurðardóttir forfallaðist Einnig tekur þátt Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri sem jafnframt ritar
Hvaða þjónusta skiptir þig máli? Þjónustukönnun Byggðastofnunar Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu? Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla? Hvaða þjónustu óttast íbúar helst að missa úr heimabyggð? Nú fer fram könnun sem Maskína framkvæmir fyrir hönd Byggðastofnunar meðal íbúa um land allt (utan
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2024. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að