Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.
Evrópurútan mun mæta á þrjá staði á Suðurlandi á næstu vikum og bjóða íbúum til fundar og samtals um tækfæri í heimabyggð til alþjóðasamstarfs í gegnum fjölmargar samstarfsáætlanir Evrópusambandins.
- Höfn 19. september í Nýheimum klukkan 15:00-17:00
- Vík í Mýrdal 20. september í Kötlusetri klukkan 13:00-14:30
- Selfoss 26. september, klukkan 14:00-16:00, staðsetning auglýst síðar
Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, vísinda og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:
- Erasmus+
- Horizon Europe
- Creative Europe
- European Solidary Corps
- Enterprise Europe Network
- Digital Europe
- LIFE
- Nordplus
Við hvetjum öll til að mæta of kynna sér tækifæri til alþjóðasamstarfs til framtíðar fyrir sína heimabyggð.