fbpx

26. júlí sl. undirrituðu Elfa Dögg Þórðardóttir  formaður SASS og Hreinn Haraldsson vegamálstjóri samning á milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Vegagerðarinnar um  almenningssamgöngur á milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins.  Með samningnum taka samtökin að sér að skipuleggja og tryggja  almenningssamgöngur og fólksflutninga á  svæðinu frá Ölfusi í vestri til Hornafjarðar í austri.  Samningurinn tekur gildi um næstu áramót og gildir í sjö ár.

Sjá nánar: Samningur við Vegagerð