Til baka í yfirlit
11. desember 2025
Byggðaþróun efld í Skaftárhreppi: Nýr samningur tryggir öflugra starf

Fulltrúar SASS, þær Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri og Lína Björg Tryggvadóttir verkefnastjóri, heimsóttu Skaftárhrepp á dögunum. Tilefni ferðarinnar var meðal annars undirritun nýs samnings um starf byggðaþróunarfulltrúa í sveitarfélaginu, en Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri skrifaði undir fyrir hönd Skaftárhrepps.
Um er að ræða samstarfsverkefni SASS og Skaftárhrepps og standa þeir aðilar straum af kostnaði í sameiningu. Með nýja samningnum eru tekin mikilvæg skref til að efla byggðaþróun á svæðinu.
Unnur Blandon, sem hefur sinnt starfi byggðaþróunarfulltrúa í hlutastarfi, hefur nú verið ráðin í 100% starf. Reynslan hefur leitt í ljós að verkefnin eru næg og full þörf er á heilu stöðugildi til að sinna þeim mikilvægu verkefnum sem liggja fyrir í sveitarfélaginu.
Öflugur hluti af teymi SASS
Samningurinn markar tímamót þar sem fyrirkomulagið verður nú með sama sniði og í Rangárþingi og Uppsveitum Árnessýslu.
Með þessu móti nýtur starfsmaðurinn enn frekar stuðnings, ráðgjafar og tengslanets samtakanna samhliða því að vinna að sértækum hagsmunamálum Skaftárhrepps. Sveitarfélagið sér mikinn ávinning í því að tengja starfsmann sinn með beinum hætti inn í þetta öfluga samstarfsnet, sem styrkir bæði starfsmanninn og verkefnin sem unnið er að.
SASS fagnar þessum áfanga og hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs við Skaftárhrepp um eflingu byggðar og mannlífs á svæðinu.
Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri og Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri SASS við undirskrift samningsins
Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar