fbpx

Í vikunni rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Alls bárust  sjóðnum 112 umsóknir. Skiptast umsóknirnar í eftirfarandi flokka, menningarverkefni samtals 71 umsóknir og atvinnu- og nýsköpunarverkefni samtals 41 umsóknir.

Allir umsækjendur fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga eigi síðar en 12. nóvember 2021.