fbpx

 

Í vikunni rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbygginarsjóð Suðurlands. Alls bárust sjóðnum 134 umsóknir, skiptast umsóknir í eftirfarandi flokka, menningarverkefni  og atvinnu- og nýsköpunarverkefni.  Í flokk menningarverkefna bárust 88 umsóknir og 46 umsóknir í flokka atvinnu- og nýsköpunarverkefnum. 

Allir umsækjendur munu fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga þegar niðurstöður liggja fyrir. 

Reiknað er með því að úthlutunarkynning verði haldin þann 9. apríl nk. og verður hún auglýst þegar að nær dregur. Einnig má fylgjast með fréttum og tilkynningum af Uppbyggingasjóði Suðurlands á Facebook síðu sjóðsins https://www.facebook.com/uppbyggingarsjodursudurlands