fbpx
3. janúar 2024

Opnað er fyrir skráningar í Gulleggið 2024 – KlakErt þú með viðskiptahugmynd? Óskað er eftir skráningum, með eða án hugmynda, í Gulleggið 2024. Síðasti dagur til skráningar er 19. janúar nk. og fer skráning fram á vef Gulleggsins, sjá hér. Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008. Gulleggið hefst 20. janúar með opnum Masterclass, þar sem markmiðið er að þróa hugmynd og búa til kynningu sem gerir þér kleift að taka næsta skref. 10 teymi eru svo valin inn í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í hátíðarsal Grósku. Lögð er rík áhersla á að þetta sé hugmyndakeppni og mega keppendur ekki hafa tekið inn fjármagn umfram 2 milljónir króna eða byrjað að hafa tekjur af hugmyndinni. Gulleggið hefur verið stökkpallur fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki sem dæmi Controlant, Meniga, PayAnalytics, Genki, Taktikal og fjölmörg önnur.

Við hvetjum Sunnlendinga til að skrá sig til þátttöku í Gulleggið 2024.