Málþing um stöðu innflytjenda í sveitarfélögum verður haldið í Reykjanesbæ 14. nóvember 2014 Málþingið er ætlað sveitarstjórnarmönnum og öðrum stjórnendum í sveitarfélögum, svo og starfsmönnum sem hafa umsjón með málefnum innflytjenda. Félagsmálastjórar, mannauðsstjórar og stjórnendur upplýsingamála eru sérstaklega hvattir til að mæta. Dagskrá á pdf. Kynning á málþinginu Skráning á málþingið er hér
Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2015. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að verðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr. 577/2014. Samkvæmt úthlutunarreglunum er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til: Vðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum. Viðhalds annarra mannvirkja sem
Markaðsstofa Suðurlands stendur fyrir málþingi um ferðaþjónustu á Suðurlandi og stefnumótun til framtíðar. Málþingið fer fram föstudaginn 7. nóvember kl. 13:30- 16:30 á Icelandair Hótel Vík. Fjallað verður um dreifingu ferðamanna, lengd dvalar á svæðinu, ásamt hugmyndum um stefnumótun ferðamála á Suðurlandi til framtíðar. Þátttakendur taka virkan þátt í umræðum, sem verða nýttar til stefnumótunar um
17. ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga verður haldinn þann 6. nóvember n.k. í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli. Fundurinn verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, en yfirskriftin að þessu sinni er Hlutverk náttúruverndarnefnda. Að fundi loknum verður farið í skoðunarferð í fylgd heimamanna. Fundarstjórn í höndum fulltrúa Rangárþings eystra Dagskrá 1. hluti – 10:00 –
Drög að tillögu að matsáætlun Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Sprengisandsleið (26) milli Suður- og Norðurlands, í Rangárþingi ytra, Ásahreppi og Þingeyjarsveit. Framkvæmdin felur í sér nýjan 187-197 km langan veg frá Sultartangalóni að Mýri í Bárðardal. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif tveggja leiða. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur
Hag- og upplýsingasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur útbúið excel-líkan sem sýnir á myndrænu formi annars vegar skuldahlutfall sveitarfélaga og hins vegar veltufé frá rekstri í hlutfalli við tekjur á árunum 2010-2013. Á excel skjalinu er unnt að velja eitt eða fleiri sveitarfélög eða einn eða fleiri landshluta og sjá veltufé frá rekstri á Y-ásnum og
Nýtt útilistaverk eftir Halldór Ásgeirsson verður afhjúpað á Borg í Grímsnesi laugardaginn 1. nóvember kl. 16 Í Listasafni Árnesinga má fá nánari innsýn í listferil hans á sýningunni VEGFERÐ – listamannsspjall kl. 14 Á fjölbreyttri dagskrá Safnahelgar á Suðurlandi vill Listasafn Árnesinga benda sérstaklega á afhjúpun útilistaverks laugardaginn 1. nóvember kl. 16 á Borg í Grímsnesi.
Fimmtudaginn 30. október verður kvikmyndin „Stella í orlofi“ sýnd kl. 19:30 á sundlaugarbakkanum á Hvolsvelli. Alla fimmtudaga fram að jólum verður einhver viðburður í sundlauginni á Hvolsvelli kl. 19:30. Einnig verður frítt í sund fyrir ákveðna íbúa sveitarfélagsins í hvert skipti. Í kvöld verður frítt inn fyrir íbúa í Fljótshlíð.
Í neðangreindri skýrslu má sjá mannfjöldaþróun í sveitarfélögum á Suðurlandi frá 2006 til 2014. Mesta fjölgunin hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Árborg um 902 íbúa eða 12,9%. Næst á eftir er Hveragerðisbær með 249 eða 11,9%. Mesta fólksfækkun hefur verið í Mýrdalshreppi um 15 eða 3% og á hæla þess er Höfn í Hornafirði
Fimmti og síðasti viðburðurinn í menningarmánuðnum október hjá Sveitarfélaginu Árborg verður haldinn föstudagskvöldið 31. október í Hvíta húsinu á Selfossi kl. 20:30. Þar verður fjallað um sögu Bifreiðarstöðvar Selfoss, Fossnestis og Inghóls. Saga í máli og myndum af öllum stöðunum og Ólafur Þórarinsson (Labbi í Mánum) spilar. Kynnir verður Jón Bjarnason. Frítt inn.