fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða upp á vinnustofu í WordPress vefsíðugerð.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa hug á að koma upp og viðhalda einfaldri WordPress vefsíðu.
Aðaláherslan er lögð á að þátttakendur geti eftir námskeiðið sinnt vefsíðu sinni sjálfir, sett inn efni og myndir. Einnig verður farið yfir hvernig nýta má vefsíðuna í markaðssetningu á Netinu með því að tengja síðuna við leitarvélar. Þá verða viðbætur skoðaðar (e.plugins), s.s. fyrir bókanakerfi. Sérstaklega hentugt fyrir ferðaþjónustuaðila og aðila í smærri rekstri. Námskeiðið hentar einnig þeim sem eru nú þegar með vefsíðu í WordPress kerfinu og vilja ná betri tökum á að sinna síðunni. Námskeiðið verður haldið á Höfn í Hornafirði, Selfossi, í Vestmannaeyjum og Vík í Mýrdal. Innritun hjá Fræðslunetinu í síma 560 2030 eða hér >>> Skráning
Lengd: 8 klst. hvor dagur.
Fjöldi: Lágmark 6 manns, hámark 15 manns á hverjum stað.
Námskeiðsgjald: 6.990 kr.
Hvenær: Höfn, 29. – 30.október, Vestmannaeyjar: 4. – 5. nóvember, Vík: 6. – 7. nóvember, Selfoss: 12 .- 13. nóvember, kl. 10 – 17.
Kennari: Elmar Gunnarsson.