fbpx

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Suðurlandi mánudaginn 15. mars kl. 10:00–12:00

Suðurland – Samráðsfundur um stöðu samgöngumála

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Suðurlandi mánudaginn 15. mars kl. 10:00–12:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri og valkosti til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum.

Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku á skráningarsíðu fundarins, sbr. hér. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.

Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála. Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál.

Dagskrá


10:00–11:00
Erindi

Sæmundur Helgason, kennari og formaður samgöngunefndar SASS
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
Helgi Kjartansson, oddviti í Bláskógabyggð og varaformaður SASS


11:00–12:00
Umræður

Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni.

Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.

Fundarstjóri er Gissur Jónsson, varaformaður samgönguráðs