fbpx

Laugardaginn 6. september verður árviss uppskeruhátíð haldin í Hrunamannahreppi.
Fjölbreytt dagskrá verður á Flúðum og nágrenni, markaður í félagsheimilinu með uppskeru og ýmsan varning beint frá býli,
handverk, opin hús, söfn, sýningar, golfmót og tilboð hjá ferðaþjónustuaðilum.
Íþróttaviðburðurinn „Uppsveitahringurinn“ verður haldinn sama dag í þriðja sinn þar sem hlaupið og hjólað verður um uppsveitir Árnessýslu.
Vegalengdirnar eru eins og fyrri ár
• 10 km hlaup
• 46 km hjólreiðar ræstir út tveir hópar, skemmtihjólreiðahópur og keppnishjólreiðahópur.
• 10 km hjólreiðar
Skráning á www.hlaup.is
Uppsveitahringur 2014 á Facebook
Nánari upplýsingar verðaá síðum sveitarfélaganna og  www.sveitir.is

Dagskrá uppskeruhátíðar

uppsveitahringurinn_hjolakeppnin_klippt_js