Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir verður með uppistand í Ráðhúskaffi í kvöld 25.
september. Sýninguna kallar hún „Dagbók Önnu Knúts“ í stíl við nöfnu hennar Frank. Þetta er frumsýning þessa einleiks sem tekur um 1 klst. í sýningu Sýningin hefst kl. 21:00 og kostar kr. 1.000.- miðinn.
Ráðhúskaffi býður upp á léttan kvöldverð fyrir uppistandið. Borðhald hefst kl. 20:00. Verð fyrir máltíð er kr. 1.390.-, pantanir í mat í síma 8943017
Laugardaginn 26. september kl. 17:00 verður Kammerkór Suðurlands með tónleika í Versölum í Ráðhúsinu. Flutt verður efnisskrá sem kórinn flutti í Grænalandsferð sinni nýverið og vakti mikla lukku, miðaverð er kr. 1.500.-

![Óskað er eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2024 shutterstock_336479654-[Converted]](https://www.sass.is/wp-content/uploads/2020/03/shutterstock_336479654-Converted.jpg)

