fbpx

SASS hefur umsjón með Uppbyggingarsjóði Suðurlands sem veitir verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi og er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti. SASS veitir einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á Suðurlandi ráðgjöf á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Netföng og símanúmer ráðgjafa má finna hér

ÚTHLUTUNARNEFND:

Við mat á umsóknum skipar stjórn SASS í fagráð sem fer yfir umsóknir og skilar tillögum til stjórnar. Þegar úthlutun hefur verið kunngjörð er um að ræða endanlega niðurstöðu. Ekki er hægt að fara fram á endurmat á einstökum umsóknum. Sjá nánar upplýsingar um úthlutunarreglur og mat á umsóknum.

FAGRÁÐ:

Fagráð menningarstyrkja:
  • Inga Lára Baldvinsdóttir, safnvörður myndasafns Þjóðminjasafns Íslands
  • Marteinn Steinar Þórsson, kvikmyndagerðarmaður
  • Inga Jónsdóttir, listfræðingur
  • Varamaður: Aðalheiður M. Gunnarsdóttir, tónlistarkennari og söngkona
Fagráð atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkja:
  • Helga Björk Ólafsdóttir, framkvæmdarstjóri leikskólans Sóla
  • Bergsteinn Einarsson, eigandi og framkvæmdarstjóri Set ehf.
  • Laufey Helgadóttir, ferðaþjónustubóndi að Smyrlabjörgum
  • Varamaður: Guðmundur H. Gunnarsson, nýsköpunarstjóri félagsins Skinney-Þinganes hf.

 

Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjafa SASS