fbpx

Í síðari úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2015  bárust sjóðnum 122 umsóknir. Styrkur var veittur 66 verkefnum og er heildar fjárhæð styrkveitinganna rúmlega 28 milljónir. Úthlutað var 13 mkr. til 42 menningarverkefna og 15 mkr. til 24 nýsköpunarverkefna.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni í landshlutanum. Við mat á umsóknum vísast til úthlutunarreglna og viðmiða um mat á umsóknum sem finna má á heimasíðu SASS. Verkefnastjórn Sóknaráætlunar á Suðurlandi fer með hlutverk úthlutunarnefndar en fagráð á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar, skila tillögum til verkefnastjórnar. Umsjón og ábyrgð Uppbyggingarsjóðsins er hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.

Sjá lista yfir samþykktar styrkveitingar hér

Nánari upplýsingar um úthlutunina veitir verkefnisstjóri Uppbyggingarsjóðsins, Þórður Freyr Sigurðsson, í síma 480-8200 eða með tölvupósti á netfanginu thordur@sudurland.is.