Ögmundur  Jónasson samgönguráðherra sturtaði fyrsta hlassinu fyrir nýja akbraut  vegna 
tvöföldunar Suðurlandsvegar í gær 22. september.  Áður  hafði Hannes Kristmundsson fært honum skóflu sem Ögmundur tók fyrstu  skóflustunguna með og mun hann varðveita skófluna til hvatningar um að  halda verkinu áfram. Lengd framkvæmdakaflans er um 6,5 km og það er  Ingileifur Jónsson ehf sem sér um framkvæmdirnar. Að vestan tengist  vegkaflinn núverandi þriggja akreina vegi upp Lögbergsbrekku og að  austan tengist vegurinn núverandi þriggja akreina vegi um Svínahraun. Um  er að ræða …  tvöföldun  á stærstum hluta kaflans en breikkun í þriggja akreina veg á hluta  hans. Auk þess eru innifaldar í verkinu breytingar á núverandi vegamótum  við Bláfjallaveg, Bolaölduveg og við Litlu kaffistofuna. Þá skal gera  undirgöng fyrir gangandi og ríðandi umferð vestan við Litlu kaffistofuna  og breikka núverandi brú á Fóelluvötn á Sandskeiði.  Nýja  akbrautin á að vera tilbúin 20. september á næsta ári en breytingum og  frágangi á núverandi vegi á að vera lokið 20. júlí 2012.  Áætlað er að vinna standi fram að jólum ef veður verður ekki óhagstætt.