fbpx

 

SASS og samstarfsstofnanir á Suðurlandi hafa í samstarfi við Norðanátt unnið að kynningu fjárfestahátíðinni á Sigufirði.

Nú liggur fyrir að af þeim 14 verkefnum sem valin voru til þátttöku eru þrjú verkefni af Suðurlandi. Þau eiga það sameiginlegt að hafa öll þegið stuðning SASS á fyrri stigum, sem styrkþegar Uppbyggingarsjóðs Suðurlands eða sem þátttakendur í Sóknarfærum Suðurlands. Þetta er í annað sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en í ár var öllum landshlutum boðið að taka þátt og sóttu þrjátíu verkefni af öllu landinu um á Fjárfestahátíðina.

 

Verkefnin sem munu taka þátt á Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023 eru:

Bambahús – Úr drasli í nasl (VF)

Biopol – Ocean Gold (N)

EONE ehf. – e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)

Frostþurrkun ehf. – Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum (S)

Gefn – Nýsköpun í grænni efnafræði (H)

GeoSilica Iceland – GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð (R)

GreenBytes – Reducing food waste and increasing profit in restaurants. (H)

Gull úr Grasi – Tryggjum fóður og fæðuöryggi (N)

IceWind – Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum (H)

Kaja Organic – Jurtamjólkur verksmiðja (V)

Melta – Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang* sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði (S)

Skógarplöntur ehf. – Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt (N)

Vínland Vínekran –  Vínrækt, víngerð, veitingarstaður og vínmeðferða Spa (S)

YGG – Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum (A)

Verkefnin af Suðurlandi eru Frostþurrkun ehf., Melta og Vínland Vínekran.

Fjárfestahátíðin verður haldin á Siglufirði dagana 29. og 30. mars. Nánari upplýsingar á vef Norðanáttar hér.