fbpx

Tvær sýningar eru nú í gangi í Tré og list. Annarsvegar „Hennar fínasta púss“ sem samanstendur af upphlutssettum, skyrtum, svuntum og slifsum. Þar er áhersla lögð á að sýna ótrúlega fjölbreytni í efnis-og litavali. Hinsvegar er sýning á gömlum vefstól og íslenskum vefnaði, það elsta frá

árunum 1874-1880 eftir Guðrúnu Gestsdóttur. Einnig eru ofin verk eftir Ragnhildi Ingvarsdóttur og Kristínu Ketilsdóttur. Uppsetning sýninganna var í höndum Oddnýjar Kristjánsdóttur, klæðskera. Sýningar munu standa fram til áramóta.