fbpx

Markmið

Meginmarkmið verkefnisins er að stöðva viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðakjörnum og í sveitum landsins. Verkefnið miðar að víðtæku samráði og því að virkja þekkingu og getu íbúa byggðarlaga til að móta framtíðarsýn, markmið og lausnir. Þeim aðferðum sem er beitt er ætlað að stuðla að valdeflingu, (empowerment), sem birtist m.a. í fyrirkomulagi funda og í ferlinu í heild sinni.

Verkefnislýsing

Verkefnið Skaftárhreppur til framtíðar er hluti af verkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir. Núna er þriðja og síðasta árið (2017) langt komið en verkefnið hefur verið fjármagnað að mestu fyrir eitt starfsár til viðbótar og ef af því verður mun því ljúka í lok árs 2018. SASS á einn fulltrúa í verkefnastjórn verkefnisins og leggur verkefninu til fjármagn á ári hverju.

Tengsl við sóknaráætlun

  • Verkefnið byggir á markmiðum og stefnum sem fram koma.í Sóknaráætlun Suðurlands 2015-2019. Verkefnið fellur einna helst að þeirri megin áherslu sóknaráætlunar að vinna að fjölbreytni í atvinnulífi, mannlífi og menningu á svæðinu.
  • Einnig fellur verkefnið sérstaklega vel að markmiðum sóknaráætlunar um að „efla grunngerðir atvinnulífs í landshlutanum“.

Lokaafurð

Samfélag sem uppfyllir ekki lengur skilgreiningu Byggðastofnunar sem „brothætt byggð“.

Verkefnastjóri
Guðlaug Ósk Svansdóttir (f.h. SASS)
Verkefnastjórn
Sigríður Þorgrímsdóttir, Kristján Hlldórsson, Sandra Brá Jóhannsdóttir, Auðbjörg B. Bjarnadóttir, Erla Þórey Ólafsdóttir, Ólafía Jakobsdóttir, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Kristján Þ. Halldórsson
Framkvæmdaraðili
Kirkjubæjarstofa
Samstarfsaðili
SASS, Byggðarstofnun, Skaftárhreppur og Kirkjubæjarstofa
Heildarkostnaður
3.000.000 kr.
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
3.000.000 kr.
Ár
2017
Tímarammi
Janúar – desember 2017