fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands sameinuðust undir merkjum SASS á aukaaðalfundi þann 14. desember 2012.  Sameiningin tók gildi þann 1. janúar.  Í desember var auglýst eftir umsóknum í störf atvinnuráðgjafa og verkefnastjóra, á Höfn og á Selfossi.  Alls bárust 24 umsóknir í störfin og er stefnt að því að ganga frá ráðningum í janúar.

Formaður SASS, Gunnar Þorgeirsson, og framkvæmdastjóri, Þorvarður Hjaltason, komu til Hafnar þann 4. janúar til að skrifa undir húsaleigusamning og leggja drög að starfinu.  Megin áhersla starfstöðvar á Höfn verður að styðja við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í Sveitarfélaginu Hornafirði og Skaftárhreppi.  Jafnframt munu starfsmenn SASS, hvar sem starfstöðin er, sinna verkefnum fyrir allan fjórðunginn samhliða því að liðsinna íbúum á nærsvæði starfstöðvanna.

Með tilkomu starfsmanns SASS á Höfn er einnig horft til aukinnar samvinnu við aðra aðila sem vinna að eflingu samfélagsins, eins og Matís, Nýsköpunarmiðstöð, aðila í framhaldsfræðslu, rannsóknarstofnanir og viðkomandi sveitarfélög.