fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir að ráða dugmikinn einstakling í starf fulltrúa/gjaldkera á skrifstofu samtakanna, með aðsetur að Austurvegi 56 á Selfossi. Fulltrúi annast almenna skrifstofuþjónustu og ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra.

Helstu verkefni:

  •  Umsjón með afgreiðslu og móttöku skrifstofunnar
  •  Greiðsla reikninga og styrkja
  •  Almenn skrifstofuþjónusta fyrir starfsmenn SASS og samstarfsstofnanir samtakanna
  •  Setja upplýsingar á heimasíður og samfélagsmiðla

Menntunar- og hæfniskröfur:

  •  Menntun sem nýtist í starfi
  •  Reynsla af skrifstofu-/gjaldkerastörfum
  •  Góð almenn tölvukunnátta
  •  Þjónustulund og nákvæmni
  •  Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225.
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 23. september 2019.

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.