fbpx

Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fundur fyrir íbúa Suðurlands verður haldinn þriðjudaginn 11. október kl. 16-18.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Við hvetjum íbúa til að taka þátt í fjarfundinum sem haldinn er í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef Stjórnarráðsins. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir fundinn mánudaginn 10. október.

Fundardagar:

  • október – Höfuðborgarsvæðið
  • október – Suðurland
  • október – Austurland
  • október – Norðurland eystra
  • október – Norðurland vestra
  • október – Vestfirðir
  • október – Vesturland
  • október – Suðurnes