fbpx

Ráðstefnan Maturinn jörðin og við verður haldin 7. og 8. apríl nk. á Hótel Selfoss. Er hún haldin af félaginu Auður Norðursins í samstarfi við Byggðastofnun og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.

Markmið ráðstefnunnar er að hvetja til upplýstrar umræðu um áskoranir í matvælframleiðslu með hliðsjón af loftslagsmálum, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífstíl fólks. Sjónum verður sérstaklega beint að áhrifum á samfélög, byggð og atvinnulíf á landinu og þeim tækifærum sem við stöndum frammi fyrir.

Fundarstjórar eru Magnús B. Jónsson formaður stjórnar Byggðastofnunar og Lilja Einarsdóttir stjórnarmaður í SASS.

Hægt er að nálgast miða á viðburðinn á vefsíðu Tix.is 

Ráðstefnugjald er 20.000 kr. í sal, og eru veitingar skv. dagskrá innifaldar í verði. En einnig er hægt að taka þátt í streymi og er gjaldið þá eftirfarandi:

  • 7. apríl 5000 kr.
  • 8. apríl 5000 kr.
  • 7. og 8. apríl 8000 kr.

Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.